þriðjudagur, október 21, 2008

Nýju fötin keisarans


Einhver agalegur spekingur á sviði fjármála hélt því fram í viðtali við Ríkissjónvarpið í gærkvöldi að sérhver api ætti að hafa vitað hvert stefndi.
Góðærið var víst bara sápukúla sem hlyti að springa og nú sitjum við eftir rauðeygð með sápu í augunum. Bens-jepparnir og allt fíneríið var fjármagnað á lánum eða launum sem voru borguð með lánum. Sem sagt ekki raunveruleg innistæða fyrir einu né neinu.
Davíð fær vægast sagt lítinn stuðning en heldur samt ótrauður áfram með hvatvísi að leiðarljósi.
Jahérna hér.....
Erum við þátttakendur í sögunni um nýju fötin keisarans þar sem heilt ríki lokaði augunum fyrir hinu augljósa. Lét blekkjast og allir spiluðu með. Við horfðum á berrassaða keisarana, hetjurnar okkar og veittum þeim hverja viðurkenninguna á fætur annarri.
Hvernig getur manni liðið annað en kjánalega

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góð líking hjá þér, já manni líður frekar kjánalega.
Luv Harpa Thor