miðvikudagur, október 22, 2008

Mótmælum hryðjuverkalögum breta.

Ég fékk póst í morgun þar sem Gylfi Zoega stjórnmálafræðingur ásamt fleirum safnar undirskriftum og myndum af okkur Íslendingum með yfirskriftinni "Við erum ekki hryðjuverkamenn". Mér finnst þetta gott framtak því eitthvað verður að gerast á meðan ráðamenn ráða.
Ég legg til að við látum til skara skríða öll sem eitt og sendum blessuðu Bretunum hundruði fjölskyldumynda í von um að þeir sjá hvað þeir eru að gera okkur lítilli fiskiþjóð í norðri. Þjóð sem er þekkt fyrir að allt annað en blóðuga bardaga og hryðjuverk.


http://www.indefence.is/index.php


Engin ummæli: