þriðjudagur, mars 31, 2009

Sölumaður dauðans

Við Björg systir förum stundum og fáum okkur bita í hádeginu og reynum að sjálfsögðu að velja okkur eitthvað hollt og gott. Um daginn lá leið okkar á matsölustaðinn Maður lifandi og auk þess að fá okkur hádegisverð ákváðum við að kíkja í verslunina og athuga hvort það væri ekki hægt að fjárfesta í eins og einu heilbrigði. Sölumaður dauðans sá okkur litlu lömbin ráfa um í leit að einhverju sem gat gert lífið betra og greip okkur glóðvolgar. Við söluræðu sína notaði hún merkilega áróðurstækni og reyndi hvað hún gat að nota orðið drepa, dauði, eitur og annað í þeim flokki til að hræða úr okkur líftóruna. Hún þuldi upp allt sem ætti eftir að drepa okkur og samkvæmt henni þá áttum við örfáar klukkustundir eftir.
Ég er ekki í nokkrum vafa að konan hafi eitthvað fyrir sér í þessu öllu og fannst ræða hennar um skaðleika sætuefnisins aspartam sem konur dæla í sig í diet drykkjum ansi athyglisverð. Hún fór reyndar ansi víða í drápsræðum sínum og kom við í snyrtivörum og hárlitum og glennti framan í okkur agalega sniðugan farða sem væri sá besti á markaðnum. Kannski var það líka rétt en konugreyið hafði augljóslega ekki litið í spegil því með þessa grímu get ég ekki ímyndað mér að hún selji mikið af heilsu-augnskuggum og kinnalitum. Konan náði þó að selja mér heilsusamlegt roll-on úr snyrtivörulínunni. Hún sagði þetta eina svitalyktaeyðinn á markaðnum sem konur ættu að nota - engin eiturefni. Sagði heilsuspekúlanta tengja notkun roll-ons og holhandarraksturs kvenna við brjóstakrabba og hvað vill maður ekki reyna til að forðast þann vágest svo ég sló til. Eftir að hafa notað það í smá tíma fór ég að velta því fyrir mér af hverju ég væri allt í einu farin að svitna svona ógurlega. Þvílíka og aðra eins viðbjóðs-svitafýlu hef ég aldrei á ævinni kynnst fyrr en eftir að heilsu-rollonið kom til sögunnar og því var því fleygt, þó fyrr hefði verið.
Ég er enn að jafna mig á sálinni eftir að hafa setið í skólanum heilan dag og farið 5sinnum á klósettið til að reyna að þvo þessa viðbjóðs lykt af sem sat sem fastast. Ég er mikið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að útskýra fyrir vinnuhópnum mínum að svitalyktin sé ekki vegna þess að ég sé sóði heldur út af þessu helv... roll-oni. Nei það kemur kannski ekki sérlega vel út. En ef ég segi ekkert þá verð ég þessi með ógeðisfýluna.....
Ég er eigilega í smá vanda. Allt sölumanni dauðans að þakka.

16 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er í hláturskrampa, þetta gerðist nefninlega líka fyrir mig. Svona roll-on dregur fram svitalyktina í stað þess að eyða henni, hrikalegt í alla staði.
Æfing í kvöld?
MAJA

Nafnlaus sagði...

Jebbs, ákvað eftir heilsu roll-on tilraunir að taka sénsinn og stunda áfram áhættuhegðun með roll-oni sem virkar. Það er annað hvort það eða líf án samskipta við annað fólk.

Kv.
Linda Rós.

Nafnlaus sagði...

Ég fékk líka hláturskast í vinnuni að lesa þetta blogg þitt og sé ykkur systurnar í anda litlu saklausu lömbin mín.Það er sjáfsagt eitthvað til í þessu hjá þessu heilsufríki sem varð á vegi ykkar en ég held að allt sé gott í hófi hvort sem um óhollt eða hollt er að ræða. Núna skil ég af hverju ég fékk líka þessa rosalegu heilsuræðu heima um daginn.
Keðja mamma sem var næstum dáin úr hlátri.

Nafnlaus sagði...

ég fann svitalyktina af þér alveg til Kína. en ég er alveg viss um að þu hafir lent í gamalli samstarfskonu minni. ég lenti í henni úti á miðri götu á Íslandi og þar sem´hún gat ekki sannfært mig um þessar heilsuvörur þá fengu börnin´mín sínhvorn bæklinginn til lestrar..........
ég lét eina kínverska plata inn á mig andlits scrubbi...algjört æði sagði hún á sinni bjöguðu kínversku.... er ég enn að reyna að hreynsa límið sem sat eftir af andlitinu.......
kveðja úr vorinu í Shanghai, Erna

Unknown sagði...

Anna, 31.mars!! Koma svoooo

BJÖRG sagði...

hahahaha þessi færsla er snilld! Fyndast í heimi var samt þegar ég var að segja pabba frá þessari konu og hann sagði við mig: "heitir þessi kona kannski Benidikta?" ég leit á nafnspjaldið sem hún hafði gefið mér og varð steinhissa, það var rétt!!! Hún er þá þekktur bullari, ef hægt er að segja svo! :)
Dagkremið sem hún seldi mér var líka algjör óþveri!

BJÖRG sagði...

og Anna mig langar að þú byrjir aftur að blogga!

Nafnlaus sagði...

Equivalent time of day payment loans are usually a form of online payday loans presented for that thirty days time in
emergency problems. These don’t have to have the particular proof situations’ emergency, regulations they desire surety, history of credit not other stuff.
You might arrange a vacation, several valuable buying or deal with your corporation expenses – Equivalent working day
payment lending options can help you in any events.
Today those financial products are presented on-line.


My website - pożyczki bez bik

Nafnlaus sagði...

Equal day installation personal loans are generally a variety of
cash advance loans given for the month period within
unexpected situations. Some people don’t need to
have the evidence of situations’ sudden, niether
they are worth giving surety, credit profile nor
other stuff. You may method a holiday, quite a few significant buying or maybe
even take care of your enterprise charges – Comparable daytime set up
mortgages can assist you in any conditions. Now a lot of these financial
products are offered web based.

my website pożyczki pozabankowe

Nafnlaus sagði...

Comparable day time fitting up loans are actually a form of pay day loans furnished in a calendar month time period for
sudden situations. They don’t have to have your proof situations’ emergency, not they might need
surety, credit standing nor other things. It's possible you'll plan a vacation, many fundamental products
and services and even insure your home business costs – Comparable working day installation lending products
will let in a occasions. Presently such personal loans are obtainable on the web.


Feel free to visit my web blog: kredyty bez bik

Nafnlaus sagði...

Equal time fitting up financial loans will be a type of cash advance loans delivered to get a few weeks stage during unexpected
instances. Many people don’t demand the evidence of situations’ unexpected emergency, niether they might need surety, credit report
neither other stuff. You can program a secondary, quite a few
necessary purchase as well as protect your
enterprise expenses – Equal evening fitting up lending products can help you in
a occurrences. These days these kind of personal loans can be
purchased over the internet.

My weblog pożyczka na dowód

Nafnlaus sagði...

Same working day fitting lending options happen to be a type of
pay day loans granted for that thirty day period interval throughout critical instances.
Many people don’t necessitate the evidence of situations’ unexpected emergency, regulations
they are worth giving surety, credit profile or other stuff.

You could possibly package a holiday, various essential buying or maybe
handle your online business costs – Exact daytime setting
up financial loans will assist you to in different occasions.
Now most of these financial loans are presented on line.


Stop by my homepage ... pożyczki prywatne

Nafnlaus sagði...

Equal moment payments mortgages are a make of
cash advance loans granted for that thirty days stage through emergency events.
Many don’t require the proof of situations’ sudden, neither of the two they need
surety, credit history or other things. You could strategy a vacation, some fundamental
expenditures or maybe deal with your enterprise expenses
– Same exact moment fitting fiscal loans will help you in a conditions.
Right now these types of financial loans can be bought internet.


Feel free to surf to my webpage; chwilówki

Nafnlaus sagði...

Same working day fitting funds can be a form of payday advances delivered
for the week time period within urgent events. They don’t will need any evidence
of situations’ catastrophe, neither they must be given surety, credit ranking not other stuff.

You'll method if you want a, quite a few significant buying or maybe even include your home business expenditures – Very same working day installation borrowing products can assist you in a incidents. Right now all of these fiscal loans are offered on the net.

My web blog :: kredyt bez bik

Nafnlaus sagði...

Exact day setting up loans tend to be a variety of payday cash advances provided for a 4 weeks phase within unexpected instances.

These don’t need to have that evidence of situations’ critical,
none they might require surety, history of credit nor other
things. You might strategy a vacation, a few vital brings home or maybe go over
your online business charges – Comparable time payment mortgages will allow you in different cases.
Today these kinds of lending options are accessible internet.


my page ... szybka pożyczka

Nafnlaus sagði...

Ég þakka Benjamin Lee fyrir alla hjálp hans við að tryggja lánið okkar fyrir nýja heimili okkar hér í Fruitland. Þú varst skipulagður og ítarlegur og faglegur, svo og góður sem gerði gæfumuninn í samskiptum okkar við þig. Við settum traust okkar á þig og þú komst örugglega í gegn fyrir okkur. Þakka þér fyrir þolinmæðina sem og að koma fram við okkur sem fólk frekar en bara viðskiptavini til íbúðalána. Þú stendur ofar restinni, ég vil mæla með þeim sem eru hér að leita að láni eða fjárfestum að hafa samband við Benjamin Benjamin og starfsfólk hans vegna þess að það er gott fólk með ljúft hjarta, Benjamin Benjamin Netfang: 247officedept@gmail.com



Kveðja,
John Burley! Húfurnar okkar ber þig !! “